4.9 C
Selfoss

Kviknaði í bíl á Eyrarbakka í morgun

Vinsælast

Brunavörnum Árnessýslu bárust rétt eftir klukkan sex í morgun boð um að eldur væri í bifreið á Eyrarbakka. Talsverður viðbúnaður var viðhafður þar sem bifreiðin var upp við bensíndælu á bensínstöð.

Fyrstu aðilar á vettvang slógu verulega á eldinn með duftslökkvitækjum en eftir að dælubifreið frá Brunavörnum Árnessýslu kom á vettvang gekk slökkvistarf greiðlega.

Á Fb-síðu BÁ kemur fram að talið sé að kviknað hafi í bifreiðinni út frá vélbúnaði.

Nýjar fréttir