6.7 C
Selfoss

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum hverfur til annarra starfa allt þetta ár

Vinsælast

Á vef dómsmálaráðuneytisins kemur fram að breytingar verði á yfirstjórn embættis sýslumanns í Vestmannaeyjum frá 1. febrúar næstkomandi þegar Lára Huld Guðjónsdóttir, sýslumaður, hverfur tímabundið til annarra starfa hjá sýslumannaráði. Sýslumaðurinn á Suðurlandi, Kristín Þórðardóttir, verður tímabundið sett sýslumaður í Vestmannaeyjum þ.e. frá 1. febrúar til 31. desember 2019.

Í samstarfi við dómsmálaráðuneytið mun Lára Huld m.a. hafa með höndum að greina rekstur sýslumannsembættanna með tilliti til aukinnar skilvirkni og hagræðingar ásamt því að greina tækifæri fyrir rafræna þjónustu.

Á vefnum kemur fram að þessar breytingar séu í samræmi við áform dómsmálaráðherra, sem hún hefur kynnt bæði ríkisstjórn og sýslumönnum, um stefnumörkun í stjórnsýslu ríkisins í héraði sem sýslumönnum hefur verið falin.
Þar segir einnig að dómsmálaráðherra muni einnig leggja til við Alþingi á yfirstandandi þingi að gerðar verði breytingar á lögum um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði þannig að ráðherra verði á hverjum tíma heimilt að skipa sama sýslumann yfir fleiri embætti til allt að fimm ára í senn.

Nýjar fréttir