0.6 C
Selfoss

Lögreglan óskar eftir að ná tali af karlmanni

Vinsælast

Lögreglan á Suðurlandi óskar, í tengslum við rannsókn máls, að ná tali af karlmanni sem varð vitni að samskiptum stúlkubarns, með hund í taumi, við konu á göngustíg eða gangstétt í nágrenni við Móhellu á Selfossi mánudagskvöldið 28. janúar sl. um kl. 20:30. Maðurinn er talinn hafa verið á gangi þar skammt frá. Jafnframt óskar lögreglan eftir að ná tali af umræddri konu vegna samskipta hennar við barnið.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um þessa tvo einstaklinga eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Suðurlandi í síma 444 2000, í tölvupósti sudurland@logreglan.is eða á Facebook.

Nýjar fréttir