-0.6 C
Selfoss

Kristrún Rut íþróttamaður Hveragerðis 2018

Vinsælast

Það er Kristrún Rut Antonsdóttir, knattspyrnukona með Ítalska liðinu Roma, sem var kjörin íþróttamaður ársins 2018.

Kristrún lék fyrri hluta árs með Ítalska liðinu Chieti þar sem hún var lykilleikmaður liðsins. Í vor kom hún til Íslands að spila með Selfoss í Pepsi deildinni. Hún var í mjög stóru hlutverki hjá Selfossi í sumar, spilaði 10 leiki og skoraði 2 mörk. Í lok sumars lá leiðin aftur til Ítalíu þar sem stórveldið Roma fékk hana til sín. Frá því í haust hefur hún spilað með þeim og staðið sig vel, en liðið er í sjötta sæti sterkustu deildar Ítalíu.

Það er orðinn fastur liður í jólahátíð Hvergerðinga að veita afreksfólki í íþróttum viðurkenningu fyrir unnin afrek á árinu og útnefna íþróttamann Hveragerðis. Það voru 9 í kjöri íþróttamanns Hveragerðis 2018 og fengu 25 viðurkenningu fyrir góðan árangur á árinu. Allir íþróttamennirnir hafa sýnt mikinn metnað til að ná langt í sinni íþróttagrein og eru svo sannarlega góð fyrirmynd fyrir bæinn og yngri íþróttamenn.

Þeir íþróttamenn sem voru í kjöri til íþróttamanns ársins 2018 voru:

  • Arnar Dagur Daðason, körfuknattleiksmaður ársins 2018
  • Fannar Ingi Steingrímsson, golfari ársins 2018
  • Hekla Björt Birkisdóttir, fimleikakona ársins 2018
  • Helga Sóley Heiðarsdóttir, körfuknattleikskona ársins 2018
  • Kristján Valdimarsson, blakmaður ársins 2018
  • Kristrún Rut Antonsdóttir, knattspyrnukona ársins 2018
  • Rakel Hlynsdóttir, lyftingakona ársins 2018
  • Stefán Þór Hannesson, knattspyrnumaður ársins 2018
  • Úlfar Jón Andrésson, íshokkímaður ársins 2018

Random Image

Nýjar fréttir