-0.9 C
Selfoss

Marel gaf vog til fæðingadeildar HSU

Vinsælast

Þann 13. desember sl. fékk Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi ánægjulega heimsókn frá fyrirtækinu Marel á Íslandi. Erindi gestanna var að færa fæðingadeildinni á Selfossi ungbarnavog að gjöf, en fyrirtækið er einmitt þekkt fyrir framleiðslu á hágæða vogum. Marel hefur haft það til siðs undanfarin ár að færa veglegar gjafir á aðventunni í þágu samfélagsins og að þessu sinni naut HSU þessarar góðu hefðar Marels.

Vogin mælir þyngd með tveggja gramma nákvæmni og kemur með eilífðarábyrgð. Á henni er mælistika svo hægt er að mæla lengd barnanna samhliða vigtun. Hugbúnaður vogarinnar gerir enn fremur ráð fyrir hreyfingu og því kemur ekki að sök þó börnin kunni að hreyfa sig á meðan þau eru vigtuð.

Nýja vogin kemur sér einstaklega vel og leysir af hólmi eldri og ónákvæmari vog. Í tilkynnigu frá HSU er fyrirtækinu Marel eru færðar þakkir fyrir þessa veglegu, góðu og kærkomnu gjöf sem mun í framtíðinni vigta sunnlensk ungbörn enn nákvæmar en áður. Þar eru Sunnlendingar einnig hvattir til að fara í auknar barneignir svo þeir geti notið nýju vogarinnar og spornað við fækkun Íslendinga í leiðinni

Random Image

Nýjar fréttir