4.2 C
Selfoss
Home Fréttir Bæjarfulltrúar Miðflokksins í Suðurkjördæmi harma niðrandi ummæli þingmanna flokksins

Bæjarfulltrúar Miðflokksins í Suðurkjördæmi harma niðrandi ummæli þingmanna flokksins

0
Bæjarfulltrúar Miðflokksins í Suðurkjördæmi harma niðrandi ummæli þingmanna flokksins

Bæjarfulltrúar Miðflokksins í Suðurkjördæmi hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau harma niðrandi ummæli þingmanna flokksins. Þar segir:

„Bæjarfulltrúar Miðflokksins í Suðurkjördæmi harma þau niðrandi ummæli sem þingmenn Miðflokksins létu falla um samborgara sína og samstarfsfólk sitt þann 20. nóvember síðastliðinn á Klaustur Bar í Reykjavík og náðust á hljóðupptöku.

Við vonum að þingflokkur Miðflokksins komist að ásættanlegri niðurstöðu á fundi sínum í dag fyrir almenning varðandi áframhaldandi þingmennsku þeirra þingmanna sem þarna áttu hlut að máli. Að öðrum kosti óskum við eftir flokkráðsfundi þar sem félagar Miðflokksins taka ákvörðun um framhaldið.“

Sveitarstjórnarfulltrúar Miðflokksins í Suðurkjördæmi
Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir – Grindavík
Margrét Þórarinsdóttir – Reykjanesbæ
Tómas Ellert Tómasson – Svf. Árborg