Gámasvæði Árborgar lokað vegna veðurs í dag

Í tilkynningu frá Sveitarfélaginu Árborg kemur fram að gámasvæði sveitarfélagsins verði lokað í dag vegna veðurs. Talsvert rok hefur verið á Suðurlandi í dag og samkvæmt Veðurstofunni verður svo fram eftir degi.