4.9 C
Selfoss

Prentmet fullvinnur allar tegundir bóka

Vinsælast

Vegna fréttaflutnings undanfarna daga um prentun bóka vilja forráðamenn Prentmets leiðrétta þann misskilning að ekki sé hægt að endurprenta jólabækur hérlendis. Árið 2003 keypti Prentmet Félagsbókbandið Bókfell og samhliða því kom mikið af reynslumiklu starfsfólki til starfa hjá Prentmet.

Prentmet er í dag eina prentsmiðja landsins sem getur fullunnið harðspjaldabækur og getur auk þess framleitt allar gerðir bóka. Prentsmiðjan hefur í gegnum tíðina unnið með fremstu bókahönnuðum landsins í hefðbundinni og óhefðbundinni bókaframleiðslu.

Nýjar fréttir