-5 C
Selfoss

Bjóða Héraðsskjalasafni Árnesinga endurgjaldslausa lóð í Þorlákshöfn

Vinsælast

Bæjarráð Sveitarfélagsins Ölfuss ræddi húsnæðismál Héraðsskjalasafns Árnesinga á fundi sínum. Bæjarráð samþykkti samhljóða að bjóða Héraðsskjalasafni Árnesinga endurgjaldslausa lóð miðsvæðis í Þorlákshöfn.

Fram kom í fundargerðinni að  fyrir liggi að verið sé að skoða mögulega flutninga á safninu.
„Í nýjustu ársskýrslu héraðsskjalasafnsins kemur meðal annars fram að rýmisáætlun fyrir nýtt húsnæði hafi verið unnin og send stjórn og héraðsnefndarmönnum.
Í áætluninni er gert ráð fyrir 800 m2 húsnæði þar sem skjalageymslur eru alls 400 m2 auk móttöku skjala, skráningarrýmis, skrifstofu- og fundarrými, eldhúsi, snyrtingu, tæknirými o.fl.
Í rýmisáætlun var einnig lögð áhersla á að geta í fyrirsjáanlegri framtíð stækkað skjalageymslur.“

 

Nýjar fréttir