Bandarískir hermenn með gönguæfingar í Þjórsárdal

Heræfing á Íslandi 2018. Mynd NATO.
Heræfing á Íslandi 2018. Mynd NATO.

Lögreglan á Suðurlandi sendir frá sér tilkynningu þess efnis að hermenn á vegum Bandaríkjahers komi til með að æfa göngur með þungan búnað í Þjórsárdal.

„Þessa dagana fer fram stór varnaræfing á vegum NATO sem fram fer að mestu leyti í Noregi. Undanfarna daga hafa bandarískir hermenn verið með undirbúningsæfingar á Íslandi, þó aðallega á Reykjanesi og við Keflavíkurflugvöll. Í dag, föstudag og á laugardag munu hópar bandarískra hermanna vera með gönguæfingar í Þjórsárdal. Hermenn þessir verða klæddir í hermannafatnað og bera vopn. Þau eru óhlaðin, en engin skotfæri eru leyfð á þessari æfingu. Tilgangurinn er að undirbúa þetta fólk til veru í slæmu veðri og kanna þolmörk þess í göngu með þungan búnað. Ekki hafa verið settar upp lokanir vegna þessa og ekki gert ráð fyrir því að þetta trufli umferð að neinu leyti eða valdi neinu raski. Lögreglan á Suðurlandi, ásamt sérsveit Ríkislögreglustjóra verða með gæslu á svæðinu og þessu fólki til aðstoðar.“