2.8 C
Selfoss

Bílaleigan á Selfossi skiptir um eigendur

Vinsælast

Um mánaðamótin urðu eigendaskipti á bílaleigunni Car Rental Selfoss þegar hjónin Orri Ýrar Smárason og Herdís Magnúsdóttir keyptu bílaleiguna af Jóhanni Þórissyni, sem hefur átt og rekið leiguna í um 20 ár. Ekki eru áætlaðar breytingar á starfseminni og munu þau að halda áfram þar sem frá var horfið við að þjónusta Selfyssinga og sunnlendinga með bílaleigubíla og tengda starfsemi. Samhliða eigendaskiptunum mun starfsemin flytja í nýtt húsnæði að Tryggvagötu 2a og gera út þaðan.

„Mér lýst bara mjög vel á þetta fyrirtæki, en þessi kaup hafa haft svolítinn aðdraganda. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á bílum og hef starfað við bílgreinar um nokkurt skeið,” segir Orri sem hefur unnið síðustu misseri á Bílasölu Selfoss. „Okkur hlakkar til að takast á við ný verkefni. Við tökum við góðu búi og ætlum að leggja okkur fram um að halda því háa þjónustustigi sem Jói hefur haft að leiðarljósi í þessi 20 ár. Svo eru alltaf möguleikar á því að stækka og útvíkka starfsemina með tíð og tíma,” segir Orri að lokum.

Random Image

Nýjar fréttir