Bæjarráð Árborgar óskar eftir að Míla bregðist við kvörtunum íbúa yfir nettengingum

Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Á bæjarráðsfundi í Árborg voru til umræðu gæði nettengingar í sveitarfélaginu. „Í kjölfar frétta af slæmu netsambandi í austurhluta Eyrarbakka kom fram hjá upplýsingafulltrúa Mílu að hægt væri að leysa málin með uppsetningu á einföldum tengiskápum. Netsambönd eru svo mikilvægur þáttur í lífi nútímafólks að ekki er hægt að una við óbreytt ástand,“ segir í fundargerð. Bæjarráð hvetur Mílu eindregið til þess að bregðast við umkvörtunum íbúa vegna málsins. Jafnframt var bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.