8.4 C
Selfoss

Fundu manninn sem leitað var að

Vinsælast

Maður sem leitað var að á svæðinu að Fjalla­baki í gær­kvöldi og nótt fannst heill á húfi í tjaldi, kaldur og hrakinn, um tvöleytið í nótt. Maðurinn var einn á ferð og fannst innst í Jök­ulgili sem geng­ur inn af Land­manna­laug­um í átt að Torfa­jökli. Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Nokkrir tugir björgunarsveitarfóks af Suðurlandi voru kallaðar út í gærkvöldi vegna boða sem bárust frá neyðarsendi á Fjallabaki, frá svæðinu norðan Torfajökuls.

Í gildi var gul viðvörun frá Veðurstofunni á miðhálendinu enda hafði verið slagveður á hálendinu allan daginn og miklir vatnavextir. Fyrir innan Landmannalaugar voru 15–20 m/sek, slydda og fjöllin farin að hvítna.

Hópar frá SV-horni landsins streymdu síðan inn á hálendið á Fjallabaki til þess að leysa af það björgunarsveitafólkið sem var að störfum allt kvöldið. Áformað var að leit myndi standa áfram fram eftir nóttu.

Eins fram kemur á vef RÚV fannst maðurinn heill á húfi í tjaldi um tvöleytið í nótt. Hann var einn á ferð og fannst innst í Jök­ulgili sem geng­ur inn af Land­manna­laug­um í átt að Torfa­jökli.

Frá leitinni í gærkvöldi. Mynd: Landsbjörg.

Nýjar fréttir