6.7 C
Selfoss

Minnisvarði um Viggu gömlu afhjúpaður við Skeiðflatarkirkju

Vinsælast

Haustið 2017 hófst söfnun fyrir legsteini á leiði förukonunnar Vigdísar Ingvadóttur eða Viggu gömlu eins og hún var oftast kölluð. Hún er talin vera síðasta förukonan á Íslandi. Leiðið hennar er í Skeiðflatarkirkjugarði í Mýrdal.

Söfnunin gekk mjög vel, það var eins og fólk hefði beðið eftir að leggja sitt af mörkum til Viggu gömlu. Ljóst er að hún á enn stóran sess í hugum margra Mýrdælinga og Eyfellinga. Höfðingleg boð komu frá nokkrum steinsmiðjum um ókeypis legstein. Steinsmiðja S. Helgasonar var þeirra á meðal og ákveðið var að þiggja stein frá þeim. Steinninn er íslenskt gabbró og kemur frá Hornafirði.

Leitað var til Sigrúnar Einarsdóttur sem rekur Gler í Bervík til að annast skreytingu á steininum í anda Viggu gömlu. Á framhlið eru tvær glertölur önnur rauð og hin blá. Á bakhlið eru einnig tvær glertölur, önnur er gulur kross og hin er græn og líkist fjögurra laufa smára. Á framhliðina er letrað „Vigdís Ingvadóttir förukona í Mýrdal 1864–1957 – Hvíl í friði“. Þá er brot úr erfiljóði til Viggu eftir Stefán Hannesson, kennara, ritað á bakhliðina.

Sú einstaka þátttaka og velvilji sem söfnunin fékk varð til þess að hægt var að gera steininn veglegan og í anda gömlu förukonunnar.

Alls voru það 75 aðilar sem lögðu inn á söfnunarreikning. Samtals safnaðist kr. 411.959. Greiddur kostnaður vegna vinnu við steininn var kr. 355.790. Mismuninn kr. 56.169 var ákveðið að gefa til Kirkjugarðs Skeiðflatarkirkju.

Minnisvarðinn var afhjúpaður við hátíðlega athöfn í þéttsetinni Skeiðflatarkirkju þann 16. júní sl. Séra Haraldur M. Kristjánsson stjórnaði athöfninni. Haldnar voru ræður og flutt ljóð Viggu til heiðurs og allir sungu „Blessuð sértu sveitin mín”. Þegar steinninn hafði verið afhjúpaður var sungið í kirkjugarðinum „Ó Jesú bróðir besti”.
Sólin skein og kirkjugestir stöldruðu við í kirkjugarðinum, spjölluðu saman og nutu kaffiveitinga þeirra mæðgna Margrétar á Vatnskarðshólum og Evu Daggar í Garðakoti. Sannkallaður dýrðardagur í Mýrdalnum.

Þeir sem stóðu að söfnuninni senda hlýjar kveðjur til allra sem studdu söfnunina. „Það er fyrir ykkar góðvild og hjartahlýju að ein sérstæðasta og eftirminnilegasta kona sem Mýrdalurinn hefur alið hefur nú fengið minnisvarða sem mun varðveita minningu hennar um ókomin ár,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum söfnunarinnar.

Nýjar fréttir