-0.5 C
Selfoss
Home Fréttir Kristín Þórðardóttir skipuð sýslumaður

Kristín Þórðardóttir skipuð sýslumaður

0
Kristín Þórðardóttir skipuð sýslumaður
Kristín Þórðardóttir, sýslumaður á Selfossi.

Dómsmálaráðherra hefur skipað Kristínu Þórðardóttur til að vera sýslumaður á Suðurlandi frá 1. ágúst nk. Kristín er fædd hinn 6. september 1979. Hún lauk lögfræðiprófi frá lagadeild Háskóla Íslands í júní 2006.
Kristín starfaði eftir útskrift sem fulltrúi og staðgengill sýslumanns og lögreglustjóra á Hvolsvelli en frá árinu 2015 hefur hún gegnt því starfi á sameinuðu embætti sýslumanns á Suðurlandi.
Hún hefur verið settur sýslumaður á Suðurlandi frá 1. maí 2017.

Sambýlismaður Kristínar er Friðrik Erlingsson og eiga þau þrjú börn.