8.9 C
Selfoss
Home Fréttir Myndlistarsýningin Heima er best í NLFÍ í Hveragerði

Myndlistarsýningin Heima er best í NLFÍ í Hveragerði

0
Myndlistarsýningin Heima er best í NLFÍ í Hveragerði
Helga Sigurðardóttir með eitt af verkum sínum.

Helga Sigurðardóttir opnar myndlistarsýningu sína „Heima er best“ á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fimmtudaginn 19. júlí nk. kl. 16. Sýningin er í Kringlunni, gengið inn í gegnum matsal. Tónlistaratriði verða við opnun sýningarinnar. Þar koma fram Björg Þórhallsdóttir sópran og Hilmar Örn Agnarsson. Boðið verður upp á göróttan drykk Heilsustofnunar. Sýningin verður opin alla dga kl. 16–18. Allir eru velkomnir

Nafnið á sýningunni vísar í kjarna hvers mans og mikilvægi þess að tengja sig inn á við í hvíld og jafnvægi í erli lífsins.

Þetta er þrítugasta og fyrsta einkasýning Helgu. Hún kallar myndverk sín „List sálarinnar, innsæislist“ (Visionary art), sem er tilraun og viðleitni til að túlka andlega og mystíska upplifun og hugmyndir. Myndlistin er og hefur alltaf verið stór hluti af lífi Helgu, sem telur sig að mestu sjálfmenntaða í list sinni, en áratuga löng reynsla hefur þróað og þroskað færni hennar og stíl. Í leit sinni að auknum skilningi á lífinu og tilverunni og upplifun hinna duldu heima hefur Helga kynnt sér austræna og vestræna dulspeki og ýmsar leiðir til mannræktar. Hún hefur starfað til margra ára sem hjúkrunarfræðingur og segir: „Þegar maður er að annast fólk í alls konar kringumstæðum, þá er upplifunin sú að þó við séum ólík þá er kjarninn í okkur sá hinn sami þó svo að við sýnum ýmsa mismunandi fleti. Það er þrá innra með fólki eftir, fegurð, sátt, kærleika og vinsemd.“ Málverkin á sýningunni geta speglað vakandi nærveru og bent á þá blessun sem felst í innri kyrrð, jafnvægi og sátt.

Helga býr í Hveragerði og er þar með vinnustofu ásamt eiginmanni sínum Viðari Aðalsteinssyni, en þau eru saman með listakonseptið Yantra Paintings, nærandi list.

Vefsíða Helgu www.artofthesoul.is