5.4 C
Selfoss

Hátt í 700 manns skoðuðu Búrfellsstöð II

Vinsælast

Hátt í 700 manns mættu á opið hús Landsvirkjunar við Búrfell sunnudaginn 1. júlí síðastliðinn. Búrfellsstöð II er nú komin í rekstur og gafst gestum færi á að skoða þessa nýjustu aflstöð Íslendinga, 18. aflstöð Landsvirkjunar, sem gangsett var fimmtudaginn 28. júní sl. Ungir sem aldnir sýndu mannvirkjum á svæðinu mikinn áhuga og nutu veðurblíðunnar við Búrfell.

Auk skoðunarferða um nýjustu aflstöðina, sem byggð er inn í Sámsstaðaklif á milli Búrfells og Sámsstaðamúla, var boðið upp á skoðunarferðir um Búrfellsstöð, sem var fyrsta aflstöð Landsvirkjunar, gangsett fyrir tæpum 50 árum. Fræddi starfsfólk Landsvirkjunar gesti um starfsemi og sögu beggja aflstöðva. Léttar veitingar voru í boði og fékk unga fólkið að spreyta sig á vindmyllugerð undir leiðsögn Vísindasmiðju Háskóla Íslands.

Nýjar fréttir