-0.5 C
Selfoss
Home Fréttir Ólína Þorleifsdóttir ráðin skólastjóri Grunnskólans í Þorlákshöfn

Ólína Þorleifsdóttir ráðin skólastjóri Grunnskólans í Þorlákshöfn

0
Ólína Þorleifsdóttir ráðin skólastjóri Grunnskólans í Þorlákshöfn
Ólína Þorleifsdóttir.

Gengið var frá ráðningu Ólínu Þorleifsdóttur í stöðu skólastjóra Grunnskólans í Þorlákshöfn á fyrsta bæjarstjórnarfundi nýrrar bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Ölfuss þann 11. júní sl.

Ólína býr yfir mikilli reynslu á sviði menntamála. Hún starfaði sem kennari við grunnskólann frá 1998 til 2010, en þá var hún ráðin  aðstoðarskólastjóri við Kópavogsskóla. Þar vann hún til 2014 en kom þá aftur „heim“ og hóf störf hjá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesinga. Þar var hún til ársins 2016 en þá tók hún við aðstoðarskólastjórastöðunni af Jóni Sigurmundssyni.
Ólína hefur lokið B.Ed. námi í kennslufræðum, M.Ed. í menntunarfræði með áherslu á stjórnun og diplómu í sérkennslufræðum.

Ólína tekur við góðu búi af forverum sínum, þeim Halldóri Sigurðssyni og Guðrúnu Jóhannsdóttur. Guðrún sem starfaði sem skólastjóri síðustu 3 ár sagði starfi sínu lausi í vor.

Ólína býr í Þorlákshöfn ásamt eiginmanni sínum og þremur dætrum.