8.4 C
Selfoss
Home Fréttir Forystu-Flekkur og fleiri sögur komin út hjá Sæmundi

Forystu-Flekkur og fleiri sögur komin út hjá Sæmundi

0
Forystu-Flekkur og fleiri sögur komin út hjá Sæmundi

Forystu-Flekkur og fleiri sögur er fallegt safn af samskiptum manna og dýra sem Bókaútgáfan Sæmundur hefur endurútgefið. Einar E. Sæmundsen (1885–1953) skógarvörður valdi sögurnar. Bókin kom fyrst út árið 1950 en hefur verið ófáanleg um áratuga skeið.

Hér er á ferðinni einstæður gluggi inn í gamla bændasamfélagið og hina rómantísku náttúrusýn þar sem saman fóru nytjar af búpeningi og virðing fyrir hverju dýri sem fullveðja einstaklingi. Slík sýn er lærdómsrík og mikilvægt innlegg í dýraverndarumræðu samtímans.

Forystu-Flekkur er bók sem hentar öllum aldurshópum.