12.8 C
Selfoss

Lokatónleikar kórs ML í kvöld og annað kvöld

Vinsælast

Kór Menntaskólans að Laugarvatni saman stendur af 107 nemendum. Síðastliðið ár hefur verið viðburðarríkt en kórinn byrjaði skólaárið á því að syngja á Regnbogahátíðinni í Vík í Mýrdal og svo hélt kórinn tvenna jólatónleika í Skálholti. Þeir heppnuðust vel og uppselt var á báða jólatónleikana. Í mars hélt kórinn svokallað „snúsnú maraþon“ þar sem að kórnemar skiptust á að hoppa í 24 klukkustundir. Þetta var gert til þess að afla fjár fyrir utanlandsferð kórsins en ferðin var farin til Norður-Ítalíu. Þar voru haldnir tvennir tónleikar, í Muri Gries og síðan í Carducci menntaskólanum í Bolzano.

Kórinn heldur í framhaldinu tvenna lokatónleika, í kvöld fimmtudaginn 26. og annað kvöld föstudaginn 27. apríl. Fyrri tónleikarnir verða haldnir í Skálholtskirkju klukkan 20:30 og seinni verða í Guðríðarkirkju klukkan 20:00. Sungin verður fjölbreytt dagskrá af lögum sem að ættu að henta öllum. Kórfélagar hlakka til að sjá sem flesta.

Nýjar fréttir