1.7 C
Selfoss

María Jónsdóttir frá Kirkjulæk 100 ára

Vinsælast

María Jónsdóttir íbúi á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli varð 100 ára sunnudaginn 15. apríl sl. Haldið var upp á afmæli Maríu á Kirkjuhvoli og heiðruðu margir afmælisbarnið. Maríanna Másdóttir og Aðalheiður M. Gunnarsdóttir sungu fyrir gesti og Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri, færði Maríu blómvönd og platta með heillaóskum frá sveitarstjórn Rangárþings eystra.

María bjó á Kirkjulæk í Fljótshlíð og eignuðust hún og maður hennar, Ólafur Steinsson, sjö börn. Sex þeirra eru á lífi.

Random Image

Nýjar fréttir