3.4 C
Selfoss

Sumri fagnað í Hveragerði

Vinsælast

Hvergerðingar taka sumrinu fagnandi og bjóða gesti velkomna til bæjarins til að njóta dagskrár sem Landbúnaðarháskólinn að Reykjum á stærstan þátt í. Ómissandi partur af vorinu er að fagna sumri í Garðyrkjuskólanum og skoða verkefni nemenda og gæða sér á nýuppskornu grænmeti.

Skemmtileg dagskrá verður í Sundlauginni Laugaskarði en þar mun Karlakór Hveragerðis troða upp fyrir sundlaugargesti kl 11. og síðan verður boðið uppá sögugöngu frá sundlauginni kl. 12. Í Skyrgerðinni verður sumarjóga með Rakel kl. 12 og þrautabrautin verður opin í sundlauginni eftir hádegi fyrir þá spræku.

Tilvalið er að skoða Jarðskjálftasýninguna í Sunnumörk og Hveragarðinn til kl. 13 en 10 ár eru í maí síðan stóri skjálftinn skók Suðurland og verður jarðskjálftahermirinn opinn.

Sumarstemning er í Listasafni Árnesinga, en kl. 16–18 verður listasmiðja fyrir alla fjölskylduna og tilvalið að búa til grímur og fugla saman og skoða síðan sýninguna, Undirstaða og uppspretta – sýn á safneign.

Fjölmargir veitingastaðir, kaffihús og þjónustuaðilar eru í bænum sem bjóða gesti velkomna til sín á sumardaginn fyrsta  jafnt sem aðra daga. Allir eru velkomnir í Hveragerði.

Random Image

Nýjar fréttir