-0.5 C
Selfoss

Guðmundur Kr. Jónsson kosinn heiðursformaður HSK

Vinsælast

Guðmundur Kr. Jónsson á Selfossi var kosinn heiðursformaður HSK á héraðsþingi HSK sl. laugardag. Guðmundur Kr. varð snemma mjög öflugur félagsmálamaður og tók virkan þátt í starfi Umf. Selfoss og var m.a. formaður frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss árin 1968-1979. Síðar gengdi hann stöðu vallarstjóra og framkvæmdastjóra félagsins. Hann hefur verið formaður Umf. Selfoss frá 2014.

Guðmundur Kr. var kosinn formaður HSK árið 1981 og hélt um stjórnartaumana í átta ár með miklum myndarskap. Hann tók þá sæti í aðalstjórn ÍSÍ og sat í aðalstjórn í tvö ár. Guðmundur Kr. tekur enn virkan þátt í störfum sambandsins. Hann er t.a.m. mjög eftirsóttur sem þulur á frjálsíþróttamót HSK enda röggsamur og vel til forystu fallinn.

Guðmundur Kr. er sá þriðji í röðinni sem kosinn er heiðursformaður HSK. Sigurður Greipsson var kosinn á þingi sambandsins árið 1966 og Jóhannes Sigmundsson var kosinn á héraðsþingi árið 2011.

Random Image

Nýjar fréttir