6.7 C
Selfoss

Undirbúningur fyrir vor í Árborg hafinn

Vinsælast

Menningar- og bæjarhátíðin „Vor í Árborg 2018″, sem haldin verður 18.–22. apríl nk., er þetta árið tileinkuð 20 ára afmæli Sveitarfélagsins Árborgar. Skipulagning er á undirbúningsstigi og hefur íþrótta- og menningarnefnd óskað eftir tillögum að dagskráratriðum og hugmyndum um menningarviðburði. Nefndin hefur óskað eftir þátttöku félaga og samtaka, einstaklinga og áhugahópa, fyrirtækja og stofnanna.

Fjölskylduleikurinn „Gaman- saman sem fjölskylda” verður hluti af hátíðarhöldunum eins og verið hefur undangfarin ár. Sértakt vegabréf verður gefið út með dagskrá hátíðarinnar sem stimplað verður í eftir þátttöku í atburðum og heimsóknum á viðburði. Vegabréfinu er síðan skilað inn eftir hátíðina og eiga þátttakendur möguleika á veglegum vinningum.

Áhugasamir geta haft samband við Braga Bjarnason, menningar- og frístundafulltrúa, netfang bragi@arborg.is eða í síma 480 1900.

Nýjar fréttir