0.5 C
Selfoss

Frjálsíþróttaakademían við FSu starfrækt þriðja árið í röð

Vinsælast

Frjálsíþróttakademían við Fjölbrautaskóla Suðurlands er nú starfrækt þriðja árið í röð en á haustdögum var samstarfssamningur milli frjálsíþróttadeilar Umf. Selfoss og Fjölbrautaskóla Suðurlands endurnýjaður. Tuttugu og þrír nemendur eru skráðir til leiks og er fjölgun milli ára sem gefur fyrirheit um að akademían sé komin til að vera. Fjórar æfingar eru á viku á skólatíma, 55 mínútur hver, en auk þess gefst nemendum einnig kostur á að æfa á kvöldin með meistarahópi frjálsíþróttadeildar Selfoss.

Viðfangsefni frjálsíþróttaakademíunnar eru af ýmsum toga, svo sem tækniþjálfun frjálsíþróttagreina, styrktarþjálfun, hlaupaþjálfun, teygjur og slökun, ásamt bóklegum kennslustundum þar sem farið er í skipulagningu þjálfunar, næringarfræði o.fl. Aðstaða fyrir frjálsar er með ágætum á Selfossi allt frá íþrótta- og þreksal í Iðu upp í fullkominn frjálsíþróttavöll sem er nýttur eins og kostur er. Nemendur skrifa undir svokallaðan nemendasamning í upphafi annar eins og gert er í öðrum akademíum við skólann.

Starfsemi akademíunar gengur vel enda nemendahópurinn flottir unglingar víðsvegar af Suðurlandinu. Meginmarkmið akademíunnar er að nemendur prófi sem flestar greinar frjálsíþrótta og séu dugleg að mæta og átti sig á að til þess að bæta árangur sinn í greininni þarf að stunda hana af kappi. Stór hluti af nemendum akademíunnar æfir með keppni í huga og verður gaman að fylgjast með gengi þeirra á innanhússkeppnistímabilinu sem nú er nýhafið.

Ólafur Guðmunudsson, forsvarsmaður frjálsíþróttaakademíunnar.

Random Image

Nýjar fréttir