7.3 C
Selfoss
Home Fréttir Björgunarsveitir leita að Ríkharði

Björgunarsveitir leita að Ríkharði

0
Björgunarsveitir leita að Ríkharði
Ríharður Pétursson.

Í dag hafa björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurlandi leitað manns sem ekki hefur sést síðan á þriðjudag er hann fór af heimili sínu. Leit hófst í gærkvöldi og var framhaldið í morgun. Um 50–60 björgunarsveitamenn taka þátt en auk gangandi leitarmanna er leitað með hundum, drónum, bílum, sexhjólum auk þess sem verið er að meta hvort hægt sé að leita með bátum á Ölfusá. Þyrla LHG tekur einnig þátt í leitinni. Leit verður framhaldið í dag og ákvarðanir með frekari leit teknar í framhaldinu.

Eldri frétt á dfs.is:

Ríharður Pétursson.

Lögreglan á Suðurlandi hefur lýst eftir Ríkharði Péturssyni fd. 3. apríl 1969. Ríkharður, sem er meðalmaður á hæð, grannvaxinn, fór frá heimili sínu að Eyravegi 46 á Selfossi um kl. 16:00 s.l. þriðjudag en ekki er vitað um ferðir hans eftir það. Hann var þá klæddur í svartar buxur, svarta úlpu og svarta húfu með gulri áletrun.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ríkharðs eftir kl. 16:00 s.l. þriðjudag eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Suðurlandi í síma 444 2000, 112 eða á einkaskilaboðum á Facebook.