0.6 C
Selfoss

Ókeypis heilsufarsmælingar í Hveragerði á morgun

Vinsælast

Íbúar Hveragerðis, Ölfuss og nærsveita býðst að koma í ókeypis heilsufarsmælingar „SÍBS Líf og heilsa“ á morgun fimmtudaginn 23. nóvember kl. 8–16 í Heilsugæslustöðinni Breiðumörk 25b í Hveragerði. Mældur er blóðþrýstingur, blóðfita, blóðsykur, súrefnismettun og fleiri gildi, auk þess sem fólki gefst kostur á að taka þátt í lýðheilsukönnun. Hjúkrunarfræðingar frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands veita ráðgjöf og eftirfylgd og bóka tíma í læknisskoðun á staðnum ef ástæða þykir til, að því er segir í tilkynningu frá SÍBS.

Forvarnaverkefnið SÍBS Líf og heilsa er unnið í samstarfi SÍBS, Hjartaheilla, Samtaka lungnasjúklinga og Samtaka sykursjúkra. Alls hafa yfir 3000 eintaklingar á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi farið í ókeypis mælingu á blóðþrýstingi, blóðfitu, blóðsykri og súrefnismettun síðasta árið og verður hringferð um landið lokið á næsta ári.

Snemmgreining skilar sér margfalt
Guðmundur Löve framkvæmdastjóri SÍBS segir að mælingin í Hveragerði marki upphaf að SÍBS Líf og heilsa á Suðurlandi, sem muni ljúka í janúar. Í framhaldinu verði hringferð SÍBS Líf og heilsa haldið áfram og stefnan sett á að allir landsmenn hafi fengið boð um mælingu í árslok 2018, enda sé um geysimikilvægt forvarnaverkefni að ræða.

„Ef hægt er að varna því að einstaklingur látist 20 árum fyrir aldur fram eða verji jafn löngum tíma við örorku af völdum lífsstílstengdra sjúkdóma, þá sparar það samfélaginu 150 milljónir króna mælt í landsframleiðslu á mann, að ótöldum þeim mannlega harmleik sem að baki býr. Þar sem grunnkostnaður við hverja mælingu er um 1500 krónur skilar ein slík snemmgreining sér hundraðþúsundfalt,“ segir Guðmundur. Guðmundur segir að í hvert skipti sem mælt er finnist einstaklingar sem í kjölfarið leiti á heilsugæsluna til að fá staðfest hvort þeir þurfi á meðferð að halda við m.a. háþrýstingi, of háu kólesteróli eða skertu sykurþoli. Ódýr lyfjagjöf ásamt ráðgjöf um bættan lífsstíl geti þar gert gæfumuninn.

Stuðningur lykilatriði
„Stuðningur hins opinbera við heilsufarsmælingar SÍBS Líf og heilsa hlýtur að vera ein besta fjárfesting í annars stigs forvörnum sem miða að því að stöðva framgang sjúkdóms,“ segir Guðmundur. „Öll önnur inngrip sem koma þar á eftir ef einstaklingurinn þróar með sér sjúkdóm eru í senn dýrari fyrir samfélagið og afdrifaríkari fyrir einstaklinginn.“

Að sögn Guðmundar hefur það skipt sköpum að SÍBS Líf og heilsa hefur notið stuðnings Máttarstólpa SÍBS, sem séu einstaklingar og fyrirtæki sem styrkja fræðslu- og forvarnastarf samtakanna. Hægt sé að gerast Máttarstólpi með því að hringja í síma 560 4800 á skrifstofutíma eða senda tölvupóst á mattarstolpar@sibs.is.

Nýjar fréttir