2.8 C
Selfoss

Íþróttadagur í Leikskólanum Örk á Hvolsvelli

Vinsælast

Vel er hugsað um heilsuna í Rangárþingi eystra og Leikskólinn Örk tekur þar þátt af fullum krafti. Á föstudaginn í síðustu viku var íþróttadagur haldinn hátíðlegur í leikskólanum. Þar skemmtu nemendur og kennarar sér saman í hlaupi, þrautum og æfingum.

Hefð er fyrir því að börnin hlaupi um nokkrar götur Hvolsvallar í fylgd lögreglunnar og þykir það alltaf hin mesta skemmtun. Lóðin við leikskólann var svo nýtt í hinar ýmsu þrautir og æfingar þar sem börnin reyndu sig m.a. í keiluhlaupi, hringjakasti og boltaleik. Íþróttadagurinn er sannarlega skemmtileg tilbreyting í leikskólastarfinu.

Nýjar fréttir