7.1 C
Selfoss

Sveitarstjórn Rangárþings eystra ályktar um vanda sauðfjárbænda og skerta þjónustu Íslandspósts

Vinsælast

Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkt á fundi sínum í dag tvær ályktanir. Sú fyrri er um vanda sauðfjárbænda á Íslandi og sú síðari um skerta þjónustu Íslandspósts.

Ályktanirnar/bókanirnar eru eftirfarandi:

„Sveitarstjórn Rangárþings eystra hvetur landbúnaðarráðherra til að beita sér af alefli í Ríkisstjórn Íslands til að bregðast sem allra fyrst við vanda sauðfjárbænda á Íslandi.
Landbúnaður er ein af aðalatvinnugreinum sveitarfélagsins og héraðsins alls og er grundvöllur byggðar í bæði dreifbýli og þéttbýli en megin starfstöð Sláturfélags Suðurlands er á Hvolsvelli. Flest sauðfjárbú haga rekstri sínum þannig að samið er um gjalddaga að hausti á stærstu kostnaðarliðum búanna s.s. áburði, plasti og afborgunum lána hjá skuldsettum búum. Hefði tekjuskerðingin verið fyrirséð um síðustu áramót hefðu bændur átt möguleika á að haga rekstri sínum með öðrum hætti. Ljóst er að tekjuskerðingu verður ekki mætt nema með launalækkun bænda.“

Ályktun sveitarstjórnar varðandi skerðingu á póstþjónustu í Rangárþingi.

„Sveitarstjórn Rangárþings eystra mótmælir harðlega skertum opnunartíma Pósthússins á Hvolsvelli.
Hvolsvöllur er þjónustukauptún og mikill uppgangur hefur verið í sveitarfélaginu á síðustu árum. Í dreifbýlinu er rekinn öflugur landbúnaður. Þá er ferðaþjónusta ört vaxandi atvinnugrein. Mikilvægt er að öll atvinnustarfsemi hafi aðgang að sendingum sínum sem fyrst á morgnana til að starfsemi þeirra gangi sem skyldi. Þegar hefur póstþjónustu verið hagrætt langt umfram þolmörk á landsbyggðinni.“

Nýjar fréttir