8.4 C
Selfoss

Allir útskrifaðir úr fjöldahjálparmiðstöðinni

Vinsælast

Allir þeir sem veiktust af nóroveiru á Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni hafa nú verið útskrifaðir úr fjöldahjálparstöðinni í Hveragerði og hefur henni verið lokað. Þar er nú unnið að sótthreinsun og standa vonir til að þeirri vinnu ljúki eigi síðar en á morgun mánudag.

Fulltrúar viðbragðsaðila funduðu í Hveragerði kl. 10:00 í morgun og munu síðan taka saman greinargerð um aðkomu síns fólks og aðgerðir sem farið verður yfir á fundi í byrjun september.
Lögreglan á Suðurlandi og umdæmislæknir sóttvarna í héraði vilja þakka viðbragðsaðilum öllum frábæra og óeigingjarna vinnu við þetta stóra verkefni.

Nýjar fréttir