12.8 C
Selfoss

Mitt er þitt í Strandarkirkju á sunnudag

Vinsælast

Mitt er þitt er yfirskrift næstu tónleika i tónleikaröðinni Englar og menn í Strandarkirkju. Þar kemur fram dúettinn Duo Atlantica en hann skipa mezzósópransöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og spænski gítarleikarinn og tónskáldið Francisco Javier Jáuregui. Á efnisskrá þeirra eru þjóðlög frá Íslandi, Spáni og Bretlandseyjum.

Guðrún og Javier eru þekkt fyrir að skapa mikla nánd við áhorfendur, innlifun, frumlegt efnisval, heillandi framkomu, tilfinninganæma túlkun og áhugaverðar kynningar, sem færa hlustendur inn í heim hvers lags fyrir sig. Þau komu fyrst fram saman árið 2002 í Guildhall School of Music and Drama í London, þaðan sem þau luku bæði mastersgráðum í tónlist. Síðan þá hafa þau komið reglulega fram í fjölmörgum tónleikasölum og á tónlistarhátíðum víðs vegar í Evrópu, Bandaríkjunum og Afríku. Þau hafa tekið upp þrjá geisladiska: Mitt er þitt – íslensk og spænsk sönglög (12 tónar), English and Scottish Romantic Songs for voice and guitar (EMEC Discos) og Secretos Quiero Descubrir (Abu Records). Upptökur þeirra má einnig heyra á diskunum Inspired by Harpa, Icelandic Folksongs and Other Favorites og Kom skapari.

Hátíðinni lýkur með uppskerumessu og lokatónleikum 13. ágúst kl. 15 þar sem fram koma Björg Þórhallsdóttir sópran, Elísabet Waage hörpuleikari og Hilmar Örn Agnarsson organisti. Sr. Baldur Kristjánsson sóknarprestur annast guðsþjónustu.

Nýjar fréttir