7.8 C
Selfoss
Home Fréttir Manuel Rodriguez í þjálfarateymi FSU

Manuel Rodriguez í þjálfarateymi FSU

0
Manuel Rodriguez í þjálfarateymi FSU
Spánverjann Manuel A. Rodriguez er hluti af þjálfrateymi FSU í körfubolta.

Körfuknattleiksfélag FSU hefur fengið til liðs við þjálfarateymi sitt Spánverjann Manuel A. Rodriguez. Hann þjálfaði nýliða Skallagríms í Dominosdeild kvenna á síðasta keppnistímabili og náði frábærum árangri, fór með liðið í úrslit Maltbikarsins og í undanúrslit Íslandsmótsins.

„Meginstefna FSU er að leggja taustan grunn til að byggja á til langrar framtíðar. Leiðin að því markmiði er að bjóða öllum iðkendum ávallt aðstæður til að laða fram það besta í hverjum einstaklingi. Undanfarin ár hefur verið lyft grettistaki í yngriflokkastarfinu undir stjórn Karls Ágústs Hannibalssonar og iðkendum fjölgað mikið. Ráðning Rodriguez er stórt skref í þá átt að auka enn frekar fagmennsku í starfinu og hlökkum við til að hann hefjist handa í ágúst,“ segir Gylfi Þorkelsson, formaður félagsins.

Manuel mun starfa sem aðstoðarþjálfari með aðalþjálfara félagsins, Eloy Doce Chambrelan, við Akademíu FSU og með meistaraflokk karla sem leikur í 1. deild Íslandsmótsins. Auk þess mun hann starfa í öflugu þjálfarateymi yngriflokka.

Manuel segir að hann sé mjög ánægður með að hafa náð samkomulagi við FSU fyrir næsta tímabil. „Frá fyrsta degi skynjaði ég mikinn áhuga og velvild í minn garð og ég er mjög þakklátur fyrir það. Það eru forréttindi að fá að starfa með Eloy og ég veit að við munum vinna vel saman og verða öflugt teymi. Eftir meira en 15 ár í kvennaboltanum hlakka ég til að þjálfa karlalið, það verður ný reynsla fyrir mig. Ég er körfuboltaþjálfari og grundvallaratriðin eru þau sömu, og þó einhver munur kunni að vera á kynjunum líkamlega og andlega er ég tilbúinn að takast á við nýjar og krerfjandi áskoranir á mínum þjálfaraferli“.