-0.5 C
Selfoss
Home Fréttir Þegar draumar rætast í skólanum

Þegar draumar rætast í skólanum

0
Þegar draumar rætast í skólanum

Frá áramótum hefur nemendum í Setrinu í Sunnulækjarskóla staðið til boða að stunda hestamennsku. Ævintýrið hófst með tilraunaverkefni með einum nemanda. Ákveðið að bjóða fleirum að taka þátt þegar ljóst var hversu jákvæð og uppbyggjandi samvera hestsins og barnsins var. Byrjað var með einn hest, tuttugu vetra gamlan, með einstaklega gott geðslag. Hann heitir Klettur og hefur svo sannarlega sýnt hversu mikill klettur hann er fyrir nemendur. Fljótlega var augljóst að fleiri nemendur þurftu á þessari stund að halda, þar sem farið er út úr skólanum og unnin líkamleg vinna í nánd við dýr og náttúru. Því bættist hún Gola við sem er grjáskjótt átta vetra meri. Hún er lítill og nettur ljúflingur sem hefur heillað börnin.

Í kringum hestamennskuna læra nemendur að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. Þau þurfa að temja sér þolinmæði, skipuleg vinnubrögð og yfirvegaða framkomu. Börnin byrja alltaf á því að kemba hestinum vel, gefa honum brauð eða fóður og leggja síðan á. Nemendur sem kjósa að skella sér á hestbak fara í nokkra hringi í gerði sem er fyrir utan hesthúsið. Sumum finnst nóg að fá að koma í hesthúsið, klappa hestunum og finna traust og ró sem streymir frá þeim. Eftir að hafa farið á hestbak er gengið frá og gólfið sópað. Að því loknu er heitt kakó og kex í boði í kaffistofunni sem hressir sál og líkama.

Þetta tilraunaverkefni er orðið mikilvægur þáttur í vikuskipulagi Setursins og má glöggt sjá hversu jákvæð áhrif þátttakan hefur haft á nemendur. Gamall draumur Setursins er hér orðin að veruleika og vonandi verður haldið áfram að þróa verkefni í þessum anda.