Heitavatnslækur rennur í Ölfusá

Heitavatnslækur rennur nú í Ölfusá, rétt við brúna og er gufustrókurinn áberandi í kvöldsólinni. Mynd: Helena.

Nýlega hófust boranir á heitu vatni við Jórutún norðan við Ölfusárbrú á Selfossi. Í dag mátti glöggt sjá árangur borana því myndarlegur heitavatnslækur rennur nú í Ölfusá rétt við brúna. Heitavatnið er frá yfirfullri borholu skammt frá og hefur það verið leitt með bráðarbyrgða lögn fram af berginu. Gufustrókurinn er áberandi í kvöldsólinni þegar heitt vatnið fossar í ána. Myndir: Helena.

-hs.

Borholan við Jórutún á Selfossi. Mynd: Helena.