5 C
Selfoss
Home Fréttir Kanna möguleika á að koma upp hvalaathvarfi í Eyjum

Kanna möguleika á að koma upp hvalaathvarfi í Eyjum

0
Kanna möguleika á að koma upp hvalaathvarfi í Eyjum
Frá Vestmannaeyjum. Mynd: vestmannaeyjar.is.

Vestmannaeyjabær vinnur nú með stórfyrirtækinu Merlin Entertainment að því að kanna möguleika á því að koma upp hvalaathvarfi í Vestmannaeyjum og flytja þangað þrjá belugahvali eða mjaldra sem verið hafa í skemmtigarði í Kína seinustu ár. Verkefnið er í senn risa skref í ferðaþjónustu fyrir Eyjamenn og dýravelferðarverkefni sem ekki á sinn líka.

Forsaga málsins er að fyrir nokkru keypti Merlin skemmtigarð í Shanghai í Kína þar sem fyrir voru mjaldrar. Merlin, sem á forsendum dýravelferðar er á móti því að hvalir og höfrungar séu teknir úr villtri náttúru sem sýningadýr, fór þá þegar að leita að heppilegri leið til að koma þessum sýningadýrum í ákjósanlegra umhverfi og höfðu fljótlega samaband við yfirvöld í Eyjum. Á sama tíma voru Eyjamenn að leita að heppilegum alþjóðlegum samstarfsaðilum til að styðja við þá uppbyggingu sem er unnið að á vettvangi sjávarrannsókna, háskólastarfs og ferðaþjónustu.

Einn hluti af þessu verkefni hefur verið að leita leiða til að segja sögu þessara einstöku dýra, þessarar hvalategundar í heild og annarra staðbundinna sjávardýra. Öll nálgun að slíku hefur dýravelferð að leiðarljósi og sérstök áhersla lögð á að sýna eðlilegt atferli dýranna og búa þeim sem náttúrulegasta umhverfi. Þannig er saga þeirra sögð af virðingu fyrir dýrunum og þeirra stað í þeirri keðju sem náttúran er. Eitt af því sem er til skoðunar er að koma upp veglegri gestastofu með sædýrasafni á hafnarsvæðinu í Vestmannaeyjum þar sem bæði verða til sýnis lifandi fiskar, sögð saga mjaldranna auk þess sem reynt verður að koma upp athvarfi fyrir lundapysjur sem ekki geta lifað í villtri náttúrunni og ýmislegt fl.

Í tilkynningu kemur fram að Vestmannaeyjabær mun í samstarfi við Merlin halda áfram að skoða fýsileika hvað þetta varðar og sérstök áhersla er að sjálfsögðu lögð á samvinnu við sjávarlíffræðinga, hvalasérfræðinga, aðila í ferðaþjónustu og fleiri sérfróða aðila.

„Hingað til hefur verkefninu verið vel tekið af öllum þeim sem um það hafa fjallað en eftir sem áður er mikilvægt að hafa í huga að enn eru ljón í veginum og margt sem getur orðið til að hleypa keng í málið. Ekkert er því klappað í stein þótt sannarlega bindum við vonir við að vel gangi hér eftir sem hingað til.
Við hjá Vestmannaeyjabæ erum afar stolt af því að þetta risafyrirtæki sem tók á móti 62 milljónum gesta í fyrra skuli velja okkur sem samstarfsaðila og lítum á þetta sem víðtækt tækifæri fyrir okkur bæði í þróun á þekkingarumhverfinu, háskólastarfinu, hafrannsókum og þá ekki síður sem enn eitt djásnið í þá kórunu sem ferðaþjónustan er hér í Eyjum,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.