9.5 C
Selfoss

Grunnskólinn í Þorlákshöfn fékk Grænfánann

Vinsælast

Grunnskólinn í Þorlákshöfn fékk í lok síðustu viku afhentan Grænfánann frá Margréti Hugadóttur fulltrúa frá Landvernd. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í blíðskaparveðri. Umhverfisnefnd skólans með Önnu Margréti Smáradóttur grunnskólakennara í fararbroddi veitti fánanum viðtöku sem og Grænfánaskilti sem hengt verður upp á gafl skólans.

Þetta er í þriðja sinn sem fáninn er afhentur skólanum, en nokkur ár eru liðin frá afhendingu síðasta Grænfána. Nemendur og starfsfólk skólans eru afar stolt af því að hafa fengið Grænfánann afhentan og líta svo á að umhverfisverkefnið sem hófst að nýju á síðasta skólaári hafi nú fengið byr undir báða vængi og geti haldið áfram að vaxa og dafna.

Meginverkefni skólans þetta árið er flokkun alls sorps sem til fellur í skólanum og öll sú fræðsla sem flokkuninni tengist bæði til nemenda og starfsfólks. Matarsóunarverkefnið sem einnig hefur verið í gangi í skólanum undanfarin tvö skólaár verður svo næsta útspil skólans þegar kemur að því að endurnýja þarf fánann. Grænfáninn er umhverfisviðurkenning sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum.

Nýjar fréttir