-0.9 C
Selfoss

Góður árangur í Jötunhlaupinu

Vinsælast

Jötunhlaup Frískra Flóamanna og Jötunn Véla fór fram 1. maí sl. Þrátt fyrir votviðri og vind náðust góðir tímar og þátttakan var fín. Hlaupnir voru 5 og 10 km um Selfoss, að hluta á bökkum Ölfusár. Alls luku 48 keppendur hlaupinu, 29 í 5 km og 19 í 10 km.

Fyrstur í mark var stórhlauparinn Arnar Pétursson ÍR en hann rann kílómetrana 5 á 16:06 mín og fyrst kvenna var Katrín Lilja Sigurðardóttir Laugaskokki á 22:24 mín. Þórólfur Ingi Þórsson ÍR/Garmin kom fyrstur í mark í 10 km á 34:39 mín. Sigrún Sigurðardóttir Frískum Flóamönnum var femst í flokki kvenna í 10 km en hún skeiðaði kílómetrana 10 á 42:11 mín.

Tvö HSK-met voru sett, Ástþór Jón Tryggvason Selfossi setti met í flokki 18 ára og 22 ára í 5 km en hann lauk hlaupinu á 18:13 mín. Þá setti Fríski Flóamaðurinn Halldór E. Guðnason met í flokki 70–75 ára með tímanum 59:04. Sigvaldi Búi Þórarinsson fór alla 5 kílómetrana á hækjum, algjör hetja þar á ferðinni. Hlaupið tókst vel í alla staði þrátt fyrir óhagstætt veður. Auk Jötunn Véla veittu Sveitafélagið Árborg, veitingastaðurinn Yellow, MS og UMFS hlaupinu stuðning og vilja Frískir Flóamenn þakka stuðninginn.

Random Image

Nýjar fréttir