8.9 C
Selfoss

Lokakeppni Suðurlandsdeildarinnar fer fram í kvöld

Vinsælast

Nú styttist í lokakeppni Suðurlandsdeildarinnar en keppt verður í fimmgangi í kvöld föstudaginn 17. mars í Rangárhöllinni. Útlit er fyrir æsispennandi og jafna keppni líkt og verið hefur undanfarnar þrjár keppnir. Keppni hefst stundvíslega í Rangárhöllinni kl. 18:00.

Á föstudagskvöldið mun það skýrast hvaða lið verður fyrsta liðið til þess að sigra Suðurlandsdeildina. Staðan í liðakeppninni er þannig að lið Krappa leiðir með 249 stig en þar fast á eftir kemur lið Hemlu/Hrímnis/Strandarhöfuðs með 233 stig og svo er lið Húsasmiðjunnar í þriðja sæti með 193 stig. Fræðilega séð getur lið VÍKINGanna enn þá unnið keppnina en þau eru í fjórða sæti sem stendur með 166 stig. Því er keppnin enn galopin og ómögulegt að spá til um hvaða lið stendur uppi sem sigurvegari.

Nýjar fréttir