6.7 C
Selfoss

Ályktað gegn áfengisfrumvarpi á HSK-þingi

Vinsælast

Á héraðsþingi Héraðssambandsins Skarphéðins sem haldið var í Hveragerði þann 11. mars sl., var samþykkt samhljóða ályktun þar sem frumvarpi um aukið aðgengi að áfengi var harðlega mótmælt.

Á þinginu var lögð fram eftirfarandi ályktun sem var samþykkt samhljóða:
„95. héraðsþing Héraðssambandsins Skarphéðins, haldið í Hveragerði 11. mars 2017, ályktar harðlega gegn frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi um aukið aðgengi almennings að áfengi. Þing HSK minnir á að Landlæknisembættið mælir gegn frumvarpinu í heild sinni. Þing HSK hvetur þar með alþingismenn til þess að hafna með öllu frumvarpi um sölu áfengis í matvöruverslunum. HSK minnir á forvarnargildi þeirrar staðreyndar að aðgengi að áfengi sé takmarkað.“

Með tillögunni fylgdi eftirfarandi:
Um leið og þessari ályktun er hér með komið á framfæri til fjölmiðla er rétt að nefna að HSK er samband 58 ungmenna- og íþróttafélaga á Suðurlandi og telur sambandið um 19.500 félagsmenn. Í krafti þess fjölda er vonast til þess að alþingismenn taki tillit til ofangreindrar ályktunar í meðhöndlun þings á þessu frumvarpi.

Nýjar fréttir