2.8 C
Selfoss

Kristinn og Agnes bikarmeistarar FRÍ

Vinsælast

Sjö lið tóku þátt í bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands sem fór fram í Laugardalshöll laugardaginn 11. mars. HSK/Selfoss sendi efnilegt lið til keppni sem samanstóð af reynsluboltum í bland við unga og mjög efnilega frjálsíþróttamenn sem öll stóðu sig mjög vel. Afrakstur dagsins voru tveir bikarmeistaratitlar, eitt brons, tvö mótsmet, fjögur HSK-met ásamt félagametum og persónulegum bætingum. Liðið hafnaði að lokum í fimmta sæti.

HSK/Selfoss átti sigurvegara í bæði 1500 m hlaupi kvenna og karla. Agnes Erlingsdóttir Laugdælum sigraði kvennahlaupið með yfirburðum, hljóp frábærlega og kom í mark á mótsmeti 4:40,39 mín. og bætti 20 ára gamalt HSK-met um rúmar þrettán sekúndur. Selfyssingurinn Kristinn Þór Kristinsson sigraði karlahlaupið einnig með yfirburðum og hljóp á nýju mótsmeti 3:56,97 mínútum sem er tæpri sekúndu frá rúmlega tveggja ára gömlu HSK-meti hans.

Hin unga og efnilega Eva María Baldursdóttir frá Selfossi stóð sig frábærlega í hástökkinu er hún tók brons með því að stökkva 1,63 m sem er nýtt HSK met í flokki 14 ára stúlkna og jöfnun á metinu í 16-17 ára flokknum.

Allir keppendur stóðu sig mjög vel enda liðið ungt og verður án efa í keppni um bikarmeistaratitil félagsliða innan skamms tíma. Það sem einkenndi liðið þennan dag var samheldni, einbeiting og jákvæðni þar sem allir lögðu sig hundrað og fimmtíu prósent fram. Það eru bjartir tímar framundan í frjálsum á Suðurlandi.

Nánar er fjallað um mótið á vef Umf. Selfoss www.umfs.is.

Nýjar fréttir