1.7 C
Selfoss

Lionsklúbburinn Geysir í Biskupstungum og leikdeild Umf. Biskupstungna gáfu leikskólanum Álfaborg veglegar gjafir

Vinsælast

Við hér í leikskólanum Álfaborg getum verið þakklát fyrir svo margt og eitt af því er svo sannarlega fólkið hér í samfélaginu og góðvild þess. Eins og mörgum er kunnugt um þá kom upp mygla í leikskólanum síðastliðið sumar og þurftum við af þeim sökum að henda miklu af dóti leikskólans. Ekki stóð á hjálpsemi og vinsemd sveitunganna og á dögunum komu lionsmenn frá Lionsklúbbnum Geysi og fulltrúi frá leikdeild Umf. Biskupstungna og færðu leikskólanum veglegar gjafir.

Þeir Helgi Guðmundsson, Þórarinn Þorfinnsson og Guðmundur Ingólfsson, Lionsmenn með meiru, komu færandi hendi með veglegan myndlistarvagn fyrir börnin. Öllu myndlistardótinu sem við áttum, var einmitt hent og er þetta því kærkomin gjöf. Við erum þeim mjög þakklát. Það er aldeilis ekki sjálfsagt að allir séu alltaf boðnir og búnir að aðstoða okkur. Ég er mjög þakklát fyrir hönd leikskólans fyrir það hversu marga velunnara við eigum hér.

Regína Rósa Harðardóttir, leikskólastjóri Álfaborgar, ásamt Hildi Maríu Hilmarsdóttur gjaldkera leikdeildar Umf. Bisk.
Regína Rósa Harðardóttir, leikskólastjóri Álfaborgar, ásamt Hildi Maríu Hilmarsdóttur gjaldkera leikdeildar Umf. Bisk.

Hildur María Hilmarsdóttir gjaldkeri leikdeildarinnar kom einnig færandi hendi og færði leikskólanum 300 þúsund krónur fyrir hönd leikdeild Umf. Bisk.

Það má því með sanni segja að samtakamáttur fólksins hérna í Bláskógabyggð sé mikill og við þökkum kærlega fyrir þá góðvild sem okkur er sýnd.

Með vinsemd og virðingu
Regína Rósa Harðardóttir, leikskólastjóri Álfaborgar Reykholti.

Random Image

Nýjar fréttir