10 C
Selfoss

Fjögur sveitarfélög á Suðurlandi fengu styrki vegna ljósleiðaravæðingar

Vinsælast

Fulltrúar fjarskiptasjóðs og 24 sveitarfélaga skrifuðu í gær undir samninga um styrki sjóðsins til sveitarfélaganna vegna ljósleiðaravæðingar þeirra í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt. Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, staðfesti einnig samningana með undirskrift sinni og fór athöfnin fram á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Sveitarfélögin 24 fá samtals 450 milljónir króna í styrki, allt frá um 1,5 milljónum króna upp í nærri 63 milljónir. Auk styrkja frá fjarskiptasjóði þá leggja íbúar og sveitarfélög að lágmarki 350.000 kr. af mörkum vegna hverrar tengingar en í mörgum tilfellum er þörf á töluvert hærra framlagi heimamanna. Í þeim tilfellum að sveitarfélag ætlar ekki að eiga og reka eigið kerfi greiða fjarskiptafyrirtæki fyrir það að eignast slík kerfi eða reka fyrir hönd sveitarfélagsins.

Landsátakið í ljósleiðaravæðingu, Ísland ljóstengt, hófst vorið 2016 þegar fjarskiptasjóður bauð sveitarfélögum að sækja um styrk úr 450 milljóna króna potti til að leggja ljósleiðara í viðkomandi byggðarlag. Fjórtán sveitarfélög fengu styrk og lögðu sjálf fram viðbótarfjármagn eða fengu fjarskiptafyrirtæki í lið með sér. Alls náðu þau að tengja um eitt þúsund heimili og fyrirtæki í þessum áfanga.

Í ár var aftur boðinn fram 450 milljóna króna pottur og verður unnt að tengja um 1.400 nýja staði. Gera má ráð fyrir að þegar verkefnum ársins lýkur verði eftir kringum 1.600 ótengdir staðir.

Í verkefninu hefur mikil áhersla verið lögð á hagkvæma samlegð með öðrum mögulegum veituframkvæmdum og hagkvæma nýtingu innviða sem fyrir eru. Markmið átaksins er að 99,9% lögheimila og fyrirtækja eigi kost á að minnsta kosti 100 Mb/s þráðbundinni nettengingu árið 2020. Ljósleiðaravæðing utan þéttbýlis stuðlar jafnframt að uppfærslu stofnkerfa fjarskipta á landsvísu og er hún þannig forsenda áreiðanleika, útbreiðslu og gagnaflutningshraða allra farneta utan þéttbýlis.

Á Suðurlandi fengu eftirtalin sveitarfélög styrk:
Hrunamannahreppur 24.860.000 kr.
Rangárþing eystra 62.750.000 kr.
Rangárþing ytra 16.920.000 kr.
Skaftárhreppur 9.075.000 kr.

Nýjar fréttir