7.1 C
Selfoss

Hamarsmenn gerðu góða ferð vestur

Vinsælast

Hamarsmenn héldu vestur á firði í gær og öttu kappi við lið Vestra á Ísafirði. Liðin voru jöfn að stigum í 5.–6. sæti deildarinnar og búin að vinna sitthvorn leikinn í vetur. Innbyrgðis viðureignin var því undir og einnig kæmist sigurliðið í þægilega stöðu upp á framhaldið í baráttunni um fimmta og síðasta sætið í úrslitakeppnina að gera.

Hamarsmenn mættu mun betur stemmdari til leiks og komust í 2-10 eftir tvær og hálfa mínútu. Vestramenn virtust slegnir út af laginu og ógnuðu Hamarsmönnum aldrei eftir þetta. Hamarsliðið spilaði gríðarlega fallegan sóknarbolta og létu boltann ganga á milli manna þar til galopin skot fundust. Þeir pressuðu svo heimamenn stíft og uppskáru 19 stiga forskot að loknum 1. leikhluta 13-32.

Hlutirnir breytust lítið í öðrum leikhluta en þar skorðuð Vestramenn 12 stig gegn 26 frá Hamri og staðan í hálfleik 25-58. Erlendur var atkvæðamestur í fyrri hálfleik með 19 stig.

Hamasrmenn juku forskotið og leiddu mest með 40 stiga mun áður en Vestramenn settu niður nokkur skot. Hamarsmenn svöruðu þeim bara aftur og Erlendur setti niður þrist undir lok leikhlutans og staðan 45-84.

Fjórði leikhluti var því í raun formsatriði þar sem úrslitin voru löngu ráðin. Hamarsmenn slökuðu aðeins á en unnu leikhlutann engu að síður með 7 stigum. Lokatölur leiksins voru því 65-111.

Erlendur Ágúst var maður leiksins með 31 stig og 4 fráköst en allt liðið spilaði stórkostlega. Af öðrum leikmönnum voru Chris Woods með 28 stig/8 fráköst, Örn 16 stig, Snorri 16 stig/6 fráköst, Hilmar 7 stig, Oddur 4 stig/7 stoðsendingar(5 stolnir, Björn 4 stig, Smári 3 stig og Rúnar með 2 stig/4 fráköst.

Hamarsmenn eru því komnir með 8 sigra í deildinni og 11 töp. Þeir skyldu því Vestramenn eftir með 7 sigra og 12 töp. Þeir þurfa því að vinna tveimur fleiri leiki en Hamar í síðust fimm leikjunum út af innbyrgðis viðureignumliðanna. Nágrannar Hamars í FSu eru því þeir sem eiga hvað mestan séns í að ná 5. sætinu af Hamri en þau lið mættast einmitt í síðustu umferðinni 10. mars. Næsti leikur Hamars er eftir viku gegn botnliði deildarinnar Ármanni sem á enn eftir að vinna leik.

5. sæti Hamar 8-11 16 stig
6. sæti Vestri 7-12 14 stig
7. sæti FSu 7-13 14 stig

Nýjar fréttir