7.8 C
Selfoss

Elsti Hvergerðingurinn verður 99 ára á árinu

Vinsælast

Regína Guðmundsdóttir er elsti íbúi Hveragerðis en hún verður 99 ára 12. mars nk. Árgangur fæddur 1989 er langfjölmennastur í bæjarfélaginu en þau eru nú 48 búandi í Hveragerði. Árið 2016 fæddust 28 börn og nú eru íbúar í Hveragerði 2.483 talsins.

Regína bjó lengstum á Selfossi en nú er hún búsett á hjúkrunarheimlinu Ási. Þrettán Hvergerðingar eru komnir yfir nírætt.

Sem fyrr er árgangur 1989 langfjölmennastur í bæjarfélaginu en þau eru nú 48 sem búa hér í Hveraggerði. Hefur þeim fjölgað um fjóra frá fyrra ári en þá voru þau einnig fjölmennust eða 44 talsins. Næst fjölmennustu árgangar bæjarins eru fædd árin 1950 og 1996 en þau eru 44 fædd hvort ár. Þar á eftir koma svo árgangar fæddir árið 1947 og 2011 en þau eru 41 fædd á hvoru árinu. 40 manns búa síðan hér í Hveragerði sem fædd eru árin 1964 og 1952.
Árið 2016 fæddust 28 börn sem öll hafa verið boðin velkomin með gjöf frá bæjarfélaginu sínu.

Samkvæmt óstaðfestum upplýsingum úr þjóðskrá þann 1. janúar 2017 eru íbúar í Hveragerði nú 2.483 en voru 2.462 fyrir 12 mánuðum. Er þetta aukning um 21 íbúa eða 0,85%. Er þetta heldur minni fjölgun heldur en árið 2016 en þá fjölgaði bæjarbúum um 3,14%. Skýring bæjarstjóra á minni fjölgun er klárlega húsnæðisskortur sem sjaldan eða aldrei hefur verið jafn áberandi og nú.

Nýjar fréttir