Sr. Arnaldur Arnold Bárðarson hefur verið ráðinn prestur í Árborgarprestakalli og tekur við starfi sínu 1. ágúst næstkomandi.
Arnaldur hefur víðtæka reynslu af prestsþjónustu bæði á Íslandi og í Noregi. Hann hefur áður starfað meðal annars á Akureyri, í Eyrarbakkaprestakalli og í Árborgarprestakalli. Frá ársbyrjun 2023 hefur hann þjónað sem prestur í Austfjarðaprestakalli.
Arnaldur er menntaður guðfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur einnig lokið framhaldsnámi í guðfræði og menntunarfræðum.

