15.6 C
Selfoss

Nýr þjónustusamningur milli Svf. Árborgar og Skátafélagsins Fossbúa

Vinsælast

Sveitarfélagið Árborg hefur undirritað nýjan þjónustusamning við Skátafélagið Fossbúa um starfsemi félagsins fyrir íbúa á svæðinu. Samningurinn er ætlaður til að styrkja starfsemi félagsins og styðja við áframhaldandi uppbyggingu þess á komandi árum. Samningurinn gildir til loka árs 2030 og var undirritaður af Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra Árborgar, og Thelmu K. Kvaran félagsforingja.

Samkvæmt samningnum mun skátafélagið hljóta stuðning vegna barna- og ungmennastarfs síns auk þess að taka þátt í framkvæmd ýmissa samfélagsverkefna, þar á meðal viðburða á borð við sumardaginn fyrsta, 17. júní hátíðarhöld, fjölskyldugöngu og fjölskylduvöku. Þá verður einnig lögð áhersla á áframhaldandi samstarf við sveitarfélagið um verkefni sem tengjast farsæld barna og samþættingu þjónustu fyrir börn og fjölskyldur.

Undanfarin misseri hafa Árborg og skátafélagið jafnframt unnið saman að þróun nýs skátasvæðis á Selfossi. Nýtt deiliskipulag hefur nú verið samþykkt fyrir grænt svæði við Sunnulækjarskóla þar sem félagið fær aðstöðu til að byggja upp starfsemi sína. Svæðið verður þó ekki eingöngu ætlað skátunum heldur einnig opið almenningi til útivistar og afþreyingar.

Áformað er að hefja uppbyggingu félagsaðstöðu fyrir skátastarfið strax á þessu ári og í kjölfarið verður útisvæðið þróað áfram á næstu árum. Hugmyndir að skipulagi og möguleikum svæðisins hafa verið unnar í samstarfi umhverfisdeildar sveitarfélagsins og skátafélagsins.

Markmiðið er að skapa gott útivistarsvæði sem nýtist skátastarfinu, skólum og íbúum til framtíðar. Mynd: Árborg

Nýjar fréttir