15.6 C
Selfoss

Skjálftahrina vestan við Húsmúla á Hellisheiði

Vinsælast

Jarðskjálftahrina hófst rétt fyrir kl. 7 síðastliðinn sunnudagsmorgun um 3 km vestur af Húsmúla við Hellisheiði.

Alls mælust um 120 skjálftar, sá stærsti um 3.3 að stærð kl. 17:15 og nokkrir aðrir rétt undir 3 að stærð.

Veðurstofu hafa borist ábendingar frá Hveragerði um að skjálftarnir finnist þar en líklegt er að þeir stærstu finnist víðar.

Skjálftar og skjálftahrinur eru nokkuð algengar á þessu svæði, síðast varð álíka hrina í júní 2024.

Nýjar fréttir