Undirritaður var samningur þann 13. maí 2026 milli Borgarverks ehf og Sveitarfélagsins Árborg vegna endurgerð gatna og endurnýjunar veitna.
Verkið felur í sér endurgerð á götunum Seljavegi og Tunguvegi á Selfossi.
Endurnýja skal fráveitu-, vatnsveitu-, hitaveitu-, ídráttarrör, ljósastauralagnir og ljósastaura.
Verktaki skal einnig malbika götu, steypa kantsteina og malbika gangstéttar.
Helluleggja skal hraðahindranir, gera niðurtektir með doppuhellum og leiðarlínuhellum fyrir gangandi umferð.
Að lokum skal setja upp umferðarmerki og massa umferðarmerkingar. Einnig munu HS-Veitur leggja nýjar raflagnir í götuna.
Árborg

