5.7 C
Selfoss

Jólamarkaður Kvenfélags Biskupstungna á laugardaginn

Vinsælast

Kvenfélag Biskupstungna verður með sinn vinsæla Jólamarkað laugardaginn 28. nóvember í Aratungu kl. 13-16.

Á markaðnum geta gestir verslað jólagjafir og ýmislegt góðgæti af söluaðilum eins og  lamba og nautakjöt frá Laugardalshólum, heimabakaðar kleinur, sörur og smákökur, sultur og safa, furudropa, myndlist, rúgbrauð, barnaföt, silkislæður, leirlist, dýranammi, kerti, snyrtivörur og margt fleira.

Hlutaveltan okkar er stútfull af glæsilegum vinningum og hið rómaða kaffihlaðborð kvenfélagsins svíkur engan.

Allir hjartanlega velkomnir í Aratungu næsta laugardag kl. 13-16.

Nýjar fréttir