-0.5 C
Selfoss

Fyrsta fjölmenningarhátíð Árborgar haldin á laugardaginn

Vinsælast

Fyrsta fjölmenningarhátíð Árborgar verður haldin næstkomandi laugardag, 10. október, í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu). Hátíðin hefst klukkan 14:00 og stendur til klukkan 17:00. Boðið verður upp á dagskrá þar sem fjölbreytileikanum er fagnað með tónlist, dansi og matarsmakki.

Á hátíðinni munu tólf þátttökuþjóðir kynna menningu sína við sérstaka kynningarbása. Gestir geta fræðst um alls 12 ólík lönd, smakkað hefðbundna rétti frá ýmsum heimshornum og kynnst ríkum menningararfi þeirra sem búa í sveitarfélaginu.

Viðburðurinn er frábært tækifæri fyrir alla sem vilja læra um nýja menningu, kynna sér fjölbreytta afþreyingu eða einfaldlega njóta góðs félagsskapar í skemmtilegu og fræðandi andrúmslofti.

Aðgangur er ókeypis, verið öll innilega velkomin. Hátíðin er hluti af dagskrá Menningarmánaðarins október í Árborg.

Menningarmánuðurinn október – DAGSKRÁ 2026 | Viðburðadagatal | Sveitarfélagið Árborg

Nýjar fréttir